Opið hús: 29. janúar 2023 kl. 14:00 til 15:00.Opið hús: Jarpstjörn (0302) 2, 113 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 02. Eignin verður sýnd sunnudaginn 29. janúar 2023 milli kl. 14:00 og kl. 15:00.
SÝNUM ALLA DAGA - BÓKIÐ SKOÐUN
Fasteignamiðlun ehf. auglýsir íbúðir í nýbyggingu við Jarpstjörn 2, Úlfarsárdal, 113 Reykjavík. Afhending í maí 2023. Bókið skoðun
Íbúð merkt 0302 - Þrjú svefnherbergi, fataherbergi inn af hjónaherbergi.
Virkilega falleg og rúmgóð 113,3 fm íbúð á þriðju hæð sem snýr inn í sameiginlegt port sem fylgir eignunum í kring. Þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottahúsi, opið eldhús með vinnueyju inn í borðstofu og stofu. Uppþvottavél fylgir öllum íbúðum. Bílastæði í bílakjallara merkt B55. Allar íbúðir eru með sér loftræstikerfi sem stuðlar að heilbrigði húss og íbúa, auk orkusparnaðar sem skilar allt að 80% endurnýting á varma. Vönduð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Svalir með rennihurð. Bílastæði í bílakjallara fylgir öllum íbúðum.Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða [email protected]Nánari lýsing:Komið er inn forstofu með fataskápum.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa. Handlaug, handklæðaofn og upphengt salerni. Flísar á gólfum og veggjum.
Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi frá Axis. Ofn í vinnuhæð, góð vinnuaðstaða.
Svefnherbergi: Hjónaherbergi er rúmgott með fataherbergi. Tvö barnaherbergi með skápum, annað 12,5 fm og hitt 9,2 fm.
Stofa/ borðstofa: Rúmgóð setustofa og borðstofa opið inn í eldhús. Gengið er út á svalir út frá stofu, stór rennihurð.
Þvottahús: Þvottahús inn á salerni með fallegri innréttingu.
Bílakjallari og geymsla: Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni ásamt 12,3 fm geymslu merkt 0014.
Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, nema á votrýmum verða flísalögð. Eldhús- og baðinnréttingar eru sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Fasteignamiðlun ehf. - Grandagarður 5, 101 Reykjavík - [email protected] - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.