Opið hús: 28. janúar 2023 kl. 14:00 til 15:00.Opið hús: Jarpstjörn (0404) 4, 113 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 04. Eignin verður sýnd laugardaginn 28. janúar 2023 milli kl. 14:00 og kl. 15:00.
SÝNUM ALLA DAGA - BÓKIÐ SKOÐUN Í SÍMA: 839-1600
Fasteignamiðlun ehf. auglýsir íbúðir í nýbyggingu við Jarpstjörn 2 - 4, Úlfarsárdal, 113 Reykjavík. Afhending í maí 2023. Bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir öllum íbúðum.
Íbúð merkt 0404- tvö svefnherbergi. Tvennar svalir þ.a. nokkuð stórar þaksvalir með stókostlegu útsýni. Aðrar minni svalir út frá stofu sem snúa í átt að Jarpstjörn.
Virkilega skemmtilega hönnuð og rúmgóð 98,4 fm íbúð á fjórðu hæð sem snýr út að Jarpstjörn. Tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottahúsi, opið eldhús inn í borðstofu og stofu. Bílastæði í bílakjallara merkt B25. Allar íbúðir eru með sér loftræstikerfi sem stuðlar að heilbrigði húss og íbúa, auk orkusparnaðar sem skilar allt að 80% endurnýting á varma. Vönduð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Svalir með rennihurð.Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða [email protected] - BÓKIÐ SKOÐUN.Nánari lýsing:Komið er inn forstofu með fataskápum.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa. Handlaug, handklæðaofn og upphengt salerni. Innréttingar frá Axis og blöndunartæki frá Byko Flísar á gólfum og veggjum af tegundinni Sunstone Baugi, stærð 61x61 cm.
Eldhús: Eldhúsinnrétting sprautulakkaðar í hvítum lit með góðu skápaplássi frá Axis.Borðplötur eru grátóna. Bakaraofn, helluborð og háfur eru af gerðinni AEG, góð vinnuaðstaða.Uppþvottavél fylgir með hverri íbúð.
Svefnherbergi: Hjónaherbergi(12,7 fm) er rúmgott með góðu skápaplássi. Barnaherbergi með skápum um 10,1 fm.
Stofa/ borðstofa: Rúmgóð setustofa og borðstofa opið inn í eldhús. Gengið er út á svalir út frá stofu, stór rennihurð. Þaksvalir skráðar 18 fm með stórbrotnu útsýni.
Þvottahús: Þvottahús inn á salerni með fallegri innréttingu frá Axis.
Bílakjallari og geymsla: Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni ásamt 10,8 fm geymslu merkt 0006.
Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, nema á votrýmum verða flísalögð. Eldhús- og baðinnréttingar eru sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Fasteignamiðlun ehf. - Grandagarður 5, 101 Reykjavík - [email protected] - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.