Opið hús: 29. janúar 2023 kl. 14:00 til 15:00.Opið hús: Jarpstjörn (0503) 4, 113 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 05 03. Eignin verður sýnd sunnudaginn 29. janúar 2023 milli kl. 14:00 og kl. 15:00.
SÝNUM ALLA DAGA - BÓKIÐ SKOÐUN Í SÍMA 839-1600
Fasteignamiðlun ehf. auglýsir íbúðir í nýbyggingu við Jarpstjörn 2 - 4, Úlfarsárdal, 113 Reykjavík. Afhending í maí 2023. Bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir öllum íbúðum.
Íbúð merkt 0503 - ÞAKÍBÚÐ MEÐ STÓRKOSTLEGU ÚTSÝNI
Einstök íbúð að Jarpstjörn 4. Íbúðin er skráð 197,1 fm á fimmtu hæð með glugga á þrjá vegu. Fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, sér þvottahús, opið eldhús inn í borðstofu og stofu. Bílastæði í bílakjallara merkt B57. Allar íbúðir eru með sér loftræstikerfi sem stuðlar að heilbrigði húss og íbúa, auk orkusparnaðar sem skilar allt að 80% endurnýting á varma. Vönduð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í þvottahúsi. Tvennar svalir út frá stofu, aðrar þeirra þaksvalir sem skráðar eru 65 fm. (ekki inn í skráðum fermetrum)Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða [email protected] - BÓKIÐ SKOÐUN.Nánari lýsing:Komið er inn forstofu með fataskápum.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa. Handlaug, handklæðaofn og upphengt salerni. Innréttingar frá Axis og blöndunartæki frá Byko Flísar á gólfum og veggjum af tegundinni Sunstone Baugi, stærð 61x61 cm. Annað stærra baðherbergi við hliðina á hjónaherbergi, svipaðar innréttingar en meira skápapláss.
Eldhús: Eldhúsinnrétting sprautulakkaðar í hvítum lit með góðu skápaplássi frá Axis.Borðplötur eru grátóna. Bakaraofn, helluborð og háfur eru af gerðinni AEG, góð vinnuaðstaða. Uppþvottavél fylgir með hverri íbúð.
Svefnherbergi: Hjónaherbergi(17,2 fm) er rúmgott með góðu skápaplássi. Þrjú herbergi með skápum, öll um 13 fm að stærð.
Stofa/ borðstofa: Rúmgóð setustofa og borðstofa opið inn í eldhús. Gengið er út á svalir út frá stofu, stór rennihurð. Allt rýmið mjög bjart og fallegt. Útsýni af svölum stórbrotið.
Þvottahús: Þvottahús með fallegri innréttingu frá Axis.
Bílakjallari og geymsla: Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni ásamt 21,6 fm geymslu merkt 0012.
Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, nema á votrýmum verða flísalögð. Eldhús- og baðinnréttingar eru sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Fasteignamiðlun ehf. - Grandagarður 5, 101 Reykjavík - [email protected] - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.