Fasteignamiðlun kynnir eignina Norðurtún 13, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0817 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Norðurtún 13 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0817, birt stærð 246.3 fm.
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur [email protected].Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum á góðum stað með skjólgóðum garði og frábæru útsýni. Eigninni hefur verið vel viðhaldið í gegnum árin en búið er að skipta um þak, þakkant og rennur, gler í hluta af gluggum, drena frá eigninni og rafmagnstafla endurnýjuð. Einnig hafa vatnslagnir verið endurnýjuðar, hiti settur í gólf neðri hæðar að hluta og hitalagnir settar í steypt bílastæði.
Efri hæð samanstendur af andyri, eldhúsi, baðherbergi, þremur svefnherbergjum, búri/geymslu, sturtuaðstöðu(viðbygging), stofu, borðstofu og sjónvarpsrými. Léttur veggur aðskilur eldhús og stofu. Viðbyggingu var bætt við eignina út af búri/geymslu og útbúið rými með sturtuklefa, vask og geymslurými. Svalahurð liggur út á pall þar sem er heitur pottur. Einnig er svalahurð úr holi út á pallinn en þar hefur verið gert skjólgott rými með hitalampa. Pallurinn er skjólgóður og gróðri vaxinn garður í kring.
Neðri hæð eignarinnar samanstendur af andyri, þvottahúsi, tveimur stórum svefnherbergjum, baðherbergi og geymslu. Hringstigi liggur niður í miðju rými. Baðherbergi hefur verið enndurnýjað að hluta með flísalögðum sturtuklefa og flísum á gólfi. Svefnherbergin eru mis stór með flísum á gólfi. Mjög rúmgóð geymsla er á neðri hæð með góðu hilluplássi og flot á gólfi. Bílskúr er flotaður með hillu og skápum. Einnig er vaskur með heitu og köldu vatni.
Efri hæð:Andyri: Rúmgott með ljósum flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús: Beiki innréttingar með hvítum hurðum og viðarborðplötu. Gott skápapláss í U-laga eldhúsi með léttum vegg sem aðskilur stofu og eldhús.
Stofa/borðstofa: Stofa og borðstofa liggja saman í stóru björtu rými með parket á gólfi. Útsýni er yfir fjörðinn úr stofu.
Herbergi: Svefnherbergi eru þrjú á efri hæðinni sem eru misstór með parket á gólfi en korkflísum á hjónaherbergi. Fataskápar eru í tveimur þeirra.
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum. Innrétting er hvít með góðu skápaplássi og hvítri borðplötu. Baðkar, gólftengt klósett og vaskur.
Geymsla: Geymsla/búr er með góðu hilluplássi og háum skáp. Einnig er op upp á loft sem er yfir nánast allri eigninni því mikið geymslupláss.
Neðri hæð:Hol: Opið hol er þegar komið er niður stigann með parket á gólfi.
Herbergi: herbergin eru tvö á neðri hæðinni bæði mjög rúmgóð með flísum á gólfi. Annað er með fataskáp.
Baðherbergi: baðherbergið er flísalagt á gólfi og sturtuklefa með gler hurðum. Hvít innrétting með vask og efri skápum. Stór hvítur handklæðaofn.
Geymsla: Stór og rúmgóð geymsla með miklu hilluplássi. Gólf er flotað.
Þvottahús: Beiki innréttingar með góðu skápaplássi og ljósri borðplötu. Rúmgott rými með góðu plássi fyrir þurrkgrindur, þvottavél og þurrkara. Gólf er flotað. Opnanlegur gluggi.
Andyri: er stórt með flísum á gólfi og góðu opnu fatahengi. Mjög rúmgott .
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Fasteignamiðlun ehf. - Grandagarður 5 - 101 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.