Fossvegur 16, 580 Siglufjörður
35.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Tvíbýli
4 herb.
122 m2
35.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1978
Brunabótamat
97.950.000
Fasteignamat
44.250.000

Fasteignamiðlun kynnir eignina Fossvegur 16, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0202 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Fossvegur 16 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0202, birt stærð 244.8 fm. Eignin sem um ræðir þó er neðri hæð og er birt stærð hennar 122,4 fm. 

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur [email protected].


Eignin sem um ræðir er skráð sem einbýli en möguleiki og til stendur að skipta eigninni upp í tvær íbúðir. Um er að ræða neðri hæð með sérinngangi sem hefur verið endurnýjuð að flestu leyti. Íbúðin samanstendur af þremur mjög rúmgóðum herbergjum, eldhúsi, baðherbergi, stóru anddyri og gluggalausu rými. Gólfið hefur verið flotað í heild og er án gólfefna fyrir utan baðherbergi sem er flísalagt með gólfhita. Gengið er inn í anddyri þar sem vatns inntakið er. En nýlegt inntak hefur verið sett fyrir heita og kalda vatnið. Anddyrið býður upp á möguleika á fataskáp og hengi og er aflokað með hurð inn í rýmið. Svefnherbergin eru þrjú öll mjög rúmgóð með góðu gluggarými. Einnig er gluggalaust rými mjög rúmgott sem hægt væri að nýta sem herbergi eða geymslu. Möguleiki er á að setja glugga í það rými. Eldhús hefur verið endurnýjað með hvítum efri og neðri skápum, grárri borðplötu, helluborði og vask. Baðherbergi hefur einnig verið endurnýjað að hluta en flísar eru á veggjum og gólfi, upphengt klósett, vaskur og hvít innrétting með stórum spegli. Nýjar vatnslagnir hafa verið settar í baðherbergi og hiti settur í gólf. 
Búið er að fara í allar vatnslagnir og frárennsli. Gluggar á norðurhlið eru nýlegir en komin tími á lagfæringu á þeim gluggum sem snúa í austur. Ágætis garður er fyrir framan inngang eignarinnar og timbur pallur og timbur stigi niður með eigninni frá götu. Ljósleiðari hefur verið lagður inn í eignina. 

Anddyri: er rúmgott með steyptu gólfi. Millihurð er inn í aðalrými. 
Eldhús: er nýlegt með hvítum efri og neðri skápum og háum skápum. Vaskur, nýleg blöndunartæki, ofn og helluborð. Borðplata er ljósgrá. 
Baðherbergi: er með flísum á veggjum og gólfi. Flísalagður sturtuklefi með hurð. Hvít innrétting með vask og stórum spegli. Klósett er vegghengt og hiti er í gólfi. 
Svefnherbergi: eru þrjú mjög rúmgóð ekki með gólfefni. Gott gluggarými með góðu útsýni. 
Geymsla/herbergi: er í stóru rými sem vel er hægt að nýta sem auka svefnherbergi. Rýmið er gluggalaust en vel hægt að setja glugga. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignamiðlun ehf. - Grandagarður 5 - 101 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.