Lindargata 20, 580 Siglufjörður
28.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
95 m2
28.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1934
Brunabótamat
43.150.000
Fasteignamat
19.900.000

Fasteignamiðlun kynnir eignina Lindargata 20, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 213-0731 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Lindargata 20 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0731, birt stærð 95.3 fm. #Ath# Báðar hæðir í eigninni eru í sölu#


Nánari lýsing:
Um er að ræða eign á efri hæð í tvíbýli sem samanstendur af anddyri, eldhúsi, þremur svefnherbergjum, stofu, baðherbergi, háalofti, þvottahúsi og rúmgóðum útsýnis pall. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan s.s. eldhús, baðherbergi, gólfefni og gluggar. Gengið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi. Þvottahús er inn af anddyri en gengið er niður eins tröppu niður á flísalagt gólf. Opnanlegur gluggi er í þvottahúsi og svört borðplata, skápar eru undir þvottavél og þurrkara, vaskur, handklæðaofn og geymslupláss undir stiga. Teppalagður stigi er upp á efri hæðina og gluggi er í stigagangi. Efri hæðin er parketlögð með ljósu parketi utan við baðherbergi sem er flísalagt. Eldhús er með nýlegum hvítum innréttingum frá TAK og dökkri borðplötu. Parket er á gólfi. Búið er að skipta vatnslögnnum og frárennsli í eldhúsi og baðherbergi. Svefnherbergin eru þrjú og eru misstór, eitt er með rúmgóðum fataskáp. Öll herbergin eru parketlögð og með glugga og opnanlegu fagi. Innangengt er á milli tveggja herbergja.  Baðherbergi er flísalagt með upphengdu klósetti, vask hvítri innréttingu og frístandandi sturtuklefi. Háaloft er yfir eigninni með góðu geymsluplássi. Rúmgóðar timbur svalir eru á austurhlið eignarinnar með frábæru útsýni yfir fjörðinn. Sameiginleg lóð er með neðri hæðinni fyrir aftan eignina með stórum grasalögðum garði í brekku og snúrustaur. 

Eldhús: hvít innrétting frá TAK, parket á gólfi
Baðherbergi er flísalagt með frístandandi sturtuklefa og nýlegri innréttingu. Upphengt klósett og handklæðaofn. 
Stofa: björt stofa með parket á gólfi
Svefnherbergi: 3 svefnhergi eru á efri hæð með parket á gólfum. Innangengt er á milli tveggja herbergja. Rúmgóður skápur í einu herbergi. 
Þvottahús: Þvottahús er á neðri hæð nýlega uppgert. Skápar eru fyrir þvottavél og þurkara. Vaskur og handklæðaofn. Flísar á gólfi. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur [email protected].

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.