Norðurtún 13, 580 Siglufjörður
74.900.000 Kr.
Fjölbýli
6 herb.
246 m2
74.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1981
Brunabótamat
99.450.000
Fasteignamat
48.950.000

Fasteignamiðlun kynnir eignina Norðurtún 13, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0817 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Norðurtún 13 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0817, birt stærð 246.3 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur [email protected].


#Einbýlishús á góðum stað með frábæru útsýni# gróinn skjólgóður garður# 
Efri hæð samanstendur af andyri, eldhúsi, baðherbergi, þremur svefnherbergjum, búri/geymslu, sturtuaðstöðu, stofu, borðstofu og sjónvarpsrými. Gengið er inn í rúmgott andyri með góðu skáparými og hvítum flísum á gólfi. Inn af anddyri er flísalagt hol. Stofa, borðstofa og sjónvarpsrými liggur saman í opnu rými með miklu gluggarými með frábæru útsýni og birtu. Eldhús er aflokað inn í miðju rýminu með timbur veggjum sem ná ekki upp í loft því vel hægt að opna á milli. Eldhúsið er með hvítum innréttingum og beiki borðplötu. Gott skápapláss er með efri og neðri skápum og ljósum flísum á milli. Hvítar flísar liggja inn í eldhús og í sjónvarpsrými en parket er á stofu og borðstofu. Hvítur stál hringstigi með timbur tröppum liggur niður á neðri hæð í holi, staðsettur þannig að hann taki sem minnst pláss af rýminu sem hann er í. Svefnherbergisálma er í norðurhluta eignarinnar með þremur mismunandi stórum herbergjum. Hjónaherbergi er stærst með fataskápum og korkflísum á gólfi. Svefnherbergi 2 er einnig með fataskáp og parket á gólfi. Svefnherbergi 3 er minna einnig með parketi á gólfi. Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi er einnig í svefnálmu. Þar eru hvítar innréttingar með efri og neðri skápum en einnig háum skápum. Baðkar, vaskur og klósett.Búr/geymsla er inn af holi með góðu skápa og hillu plássi. Einnig er gott pláss fyrir auka ísskáp og frystikistu. Viðbyggingu var bætt við eignina út af búri/geymslu og útbúið rými með sturtuklefa, vask og geymslurými. Svalahurð liggur út á pall þar sem er heitur pottur. Einnig er svalahurð úr holi út á pallinn en þar hefur verið gert skjólgott rými með hitalampa. Pallurinn er skjólgóður og gróðri vaxinn garður í kring. 
Neðri hæð eignarinnar samanstendur af andyri, þvottahúsi, tveimur stórum svefnherbergjum, baðherbergi og geymslu. Gengið er inn í mjög rúmgott andyri með góðu fatahengi og flísum á gólfi. Inn af andyri er þvottahús með góðu skápa- og borðplássi. Parket er á gólfi í holi þar sem hring stigi kemur niður. Baðherbergið er með flísalögðum sturtuklefa, innréttingu, klósetti, vask og handklæða ofn. Flísar eru á gólfi. Svefnherbergin eru mis stór. Stærra herbergið er mjög rúmgott og með miklu gluggaplássi og flísum á gólfi. Hitt svefnherbergið er minna með opnanlegum glugga, fataskáp og flísum á gólfi. Mjög rúmgóð geymsla er á neðri hæð með góðu hilluplássi og flot á gólfi. Bílskúr er flotaður með hillu og skápum. Einnig er vaskur með heitu og köldu vatni. 

Efri hæð:
Andyri: Rúmgott með ljósum flísum á gólfi og fataskáp. 
Eldhús: Beiki innréttingar með hvítum hurðum og viðarborðplötu. Gott skápapláss í U-laga eldhúsi með 
Stofa/borðstofa: Stofa og borðstofa liggja saman í stóru björtu rými með parket á gólfi. 
Herbergi: Svefnherbergi eru þrjú á efri hæðinni sem eru misstór með parket á gólfi en korkflísum á hjónaherbergi. Fataskápar eru í tveimur þeirra.  
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum. Innrétting er hvít með góðu skápaplássi og hvítri borðplötu. Baðkar, gólftengt klósett og vaskur. 
Geymsla: Geymsla/búr er með góðu hilluplássi og háum skáp. Einnig er op upp á loft sem er yfir nánast allri eigninni því mikið geymslupláss. 

Neðri hæð:
Hol: Opið hol er þegar komið er niður stigann með parket á gólfi. 
Herbergi: herbergin eru tvö á neðri hæðinni bæði mjög rúmgóð með flísum á gólfi. Annað er með fataskáp. 
Baðherbergi: baðherbergið er flísalagt á gólfi og sturtuklefa með gler hurðum. Hvít innrétting með vask og efri skápum. Stór hvítur handklæðaofn. 
Geymsla: Stór og rúmgóð geymsla með miklu hilluplássi. Gólf er flotað.
Þvottahús: Beiki innréttingar með góðu skápaplássi og ljósri borðplötu. Rúmgott rými með góðu plássi fyrir þurrkgrindur, þvottavél og þurrkara. Gólf er flotað.   
Andyri: er stórt með flísum á gólfi og góðu opnu fatahengi. Mjög rúmgott . 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignamiðlun ehf. - Grandagarður 5 - 101 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.