Fasteignamiðlun ehf kynnir eignina að Hvanneyrarbraut 58, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0552 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Birt stærð eignar er 57,4 fm.Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali og viðskiptalögfræðingur, í síma 6907282, tölvupóstur [email protected].Nánari lýsing Eignin hefur verið endurnýjuð að mestu leyti þar sem eldhús og stofa voru gerð að einu sameiginlegu rými. Skipt var um vatnslagnir, eldhús endurgert að fullu sem og baðherbergi. Sérinngangur er inn í eignina sunnan megin en einnig er möguleiki að ganga inn um sameign. Parket er fljótandi um eignina fyrir utan baðherbergi sem er flísalagt. Tvö herbergi eru í eigninni með ágætis gluggum og fataskápum. Nýjir hitaveitu ofnar auk hita í gólfi í anddyri og baðherbergi. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi. Innangengt er í sameign eignarinnar þar sem geymslurými er en einnig er sameiginlegt þvottahús á þriðju hæð hússins.
Anddyri: er með góðu fatahengi og parket á gólfi. Hiti er í gólfi.
Eldhús: grágrænar Ikea innréttingar með svartri borðplötu. Parket er á gólfi.
Baðherbergi: er með hvítri innréttingu með svartri borðplötu, walk in sturtuklefa, vask, upphengdu klósetti og gert ráð fyrir þvottavél inn í innréttingu.
Svefnherbergi: eru tvö með parket á gólfi og með fataskápum.
Stofa: Parketlögð með góðu útsýni yfir fjallagarð Siglufjarðar og sjó.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Fasteignamiðlun ehf. - Grandagarður 5 - 101 Reykjavík. www.fasteignamidlun.is - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.