Hlíðarvegur 31, 580 Siglufjörður
31.500.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
3 herb.
102 m2
31.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1929
Brunabótamat
39.650.000
Fasteignamat
22.800.000

Fasteignamiðlun kynnir eignina Hlíðarvegur 31, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0397 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hlíðarvegur 31 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0397, birt stærð 102.6 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur [email protected].


Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum með frábæru útsýni. Efri hæð samanstendur af eldhúsi, stofu, borðstofu, svefnherbergi og stigagangi. Mikið útsýni er af efri hæðinni og eldhús er í opnu rými með borðstofu og stofu. Neðri hæð samanstendur af forstofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, geymslu og þvottahúsi. Eignin hefur verið uppgerð að hluta til eins og klædd að utan með steni klæðningu, gluggar endurnýjaðir, kaldavatnslagnir, gólfefni, baðherbergi og eldhús. 

Forstofa: er mjög rúmgóð með fatahengi og flísum á gólfi. 
Eldhús: er í opnu rými með borðstofu og stofu með parket á gólfi. Hvítar innréttingar með viðarborðplötu. Gott gluggarými er í eldhúsi því mikið útsýni.
Stofa: er parketlögð með góðu gluggarými. Svefnherbergi á efri hæð er inn af stofu.
Baðherbergi: er á neðri hæð með flísum á gólfi. Hvít innrétting með vask, frístandandi sturtuklefi og gólftengt klósett. 
Svefnherbergi: eru þrjú í heildina, eitt á efri hæð og tvö á neðri hæð. Herbergin eru öll mjög rúmgóð með parket á gólfi. 
Þvottahús/geymsla: er með steyptu flotuðu gólfi og góðu hilluplássi. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.