Bæjarflöt 2, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
Tilboð
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
10 herb.
2436 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
7
Inngangur
Sér
Byggingaár
2000
Brunabótamat
925.000.000
Fasteignamat
612.500.000

Fasteignamiðlun kynnir til sölu 2.436 fm. heildareignina að Bæjarflöt 2, 112 Reykjavík. Mikið útipláss, en lóðin er 6.080 fm. Stórar innkeyrsluhurðar og pláss fyrir útigáma.

Eignin er í dag nýtt undir matvælaiðnað og með kæla og frysti innan eignarinnar. Gott skrifstofurými, og matsalur, sem er ca. 330 fm. Góð aðstaða fyrir starfsfólk; klefar og matsalur. Húsnæðið hefur nýlega verið tekið í gegn að innan, s.s. gólf, innréttingar, lýsing að hluta o.fl. Mögulega byggingarréttur, m.v. sambærilegar eignir í hverfinu, er 0,68 nhl. (ca.1.700 fm.), en sækja þarf um hann hjá Reykjavíkurborg.

Nánari upplýsingar veitir Sverrir Pálmason, lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 867-1001 eða [email protected]
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.