Ljósvallagata 22, 101 Reykjavík (Miðbær)
79.000.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
87 m2
79.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1940
Brunabótamat
37.445.000
Fasteignamat
69.550.000

Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna afar fallega, vel skipulagða og mikið uppgerða 3 herbergja íbúð með aukinni lofthæð og suðvestur svölum á 3. hæð að Ljósvallagötu 22, 101 Reykjavík.

Afar falleg rými með aukinni lofthæð og fallegu útsýni út á Hólavallagarð úr stofu og eldhúsi. Eignin skiptist í hol sem tengir saman öll rými íbúðar, 2 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og aðstöðu fyrir þvottavél, samliggjandi stofa og eldhús ásamt 9fm sérgeymslu í geymsluhúsi í bakgarði. Falleg og sjarmerandi íbúð á einni af fallegustu götum borgarinnar. 4 íbúðir eru í húsinu, ein á hverjum palli. Skjólgóður sameiginlegur, hellulagður bakgarður fyrir aftan hús
 ásamt litlum garði fyrir framan hús.  Afar vinsæl staðsetning í gamla Vesturbænum með skóla á öllum stigum í göngufæri, alla helstu þjónustu og verslun ásamt fallegum útivistarsvæðum.

Smellið hér til að sjá stutt video af íbúðinni 

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða [email protected]

Fyrirhugað fasteignamat fyrir 2025 skv. HMS er 71.750.000kr.


Eignin Ljósvallagata 22 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-4178, birt stærð 87.4 fm, þar af er útigeymsla skráð 9fm.

Nánari lýsing:

Hol: Tengir saman öll rými íbúðar.
Svefnherbergi I: Mjög rúmgott. Milliveggur sem býr til hálf opið fataherbergi með góðu geymsluplássi.
Svefnherbergi II: Barnaherbergi sem er í dag einnig nýtt sem skrifstofa. Útgengt út á suðvestur svalir.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sturta, vaskur með spegli fyrir ofan, handklæðaofn ásamt aðstöðu fyrir þvottavél.
Eldhús: Samliggjandi og opið við stofu. Nýleg innrétting með efri og neðri skápum, innbyggðum ísskáp, uppþvottavél, ofn og helluborð ásamt vínrekka.
Stofa: Rúmgóð, samliggjandi og opin við eldhús. Fallegt rými með aukinni lofthæð og fallegu útsýni út á Hólavallagarð
Geymsla: 9fm sérgeymsla í geymsluhúsi í bakgarði.

Sameign: Lítil sameign. Sameiginlegur stigagangur.
Garður: Sameiginlegur, hellulagður og skjólgóður bakgarður. Tyrfður garður fyrir faman hús.

Rafmagn í sameign hefur verið endurnýjað og rafmagnstafla íbúðarinnar sömuleiðis. Skólplagnir voru endurnýjaðar undir húsi og út í götu 2006. Sett var nýtt myndavéla dyrasímakerfi í húsið 2016. Eldhús var fært í aðra stofuna og endurnýjað árið 2020 ásamt því að lagt var nýtt harðparket á öll gólf að undanskildu baðherbergi sama ár. Baðherbergi endurnýjað ca. 2006 ásamt því að settur var nýr sturtubotn og gler, ný blöndunartæki í sturtu og nýjar fallegar flísar á vegg við blöndunartæki árið 2022.

Ljósvallagatan er einstaklega sjarmerandi staðsetning við Hólavallagarð. Gatan einkennist af fallegum húsum í grónu hverfi með stór og falleg tré allt í kring. Afar vinsæl staðsetning með skóla á öllum stigum í göngufjarlægð, stóran og fjölbreyttan vinnumarkað í nágrenninu. Fjölbreytt nærþjónusta Vesturbæjarins ásamt miðbænum með öllu því sem hann hefur uppá að bjóða.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur [email protected].

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.