Vesturgata 10, 625 Ólafsfjörður
24.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Tvíbýli
3 herb.
83 m2
24.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1952
Brunabótamat
37.000.000
Fasteignamat
17.800.000

Fasteignamiðlun kynnir eignina Vesturgata 10, 625 Ólafsfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 215-4380 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Vesturgata 10 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 215-4380, birt stærð 83.4 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur [email protected].


Um er að ræða neðri hæð í tvíbýlishúsi með sérinngangi. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, baðherbergi, tveimur svefnherbergjum, geymslu og sameiginlegu þvottahúsi með efri hæð. Búið er að skipta um glugga og hurðar í eigninni. Neysluvatnslagnir hafa verið endurnýjaðar. Hiti er í stétt framan við eignina. 

Forstofa: er flísalögð með góðu fatahengi.
Eldhús: er með Ikea viðarinnréttingum og ljósri borðplötu. Plastparket er á gólfi. 
Stofa: er með góðu gluggaplássi og parket á gólfi. Vængjahurð er inn í svefnherbergi. 
Baðherbergi: er með flísum á gólfi og í sturtuklefa. Hvít innrétting, vaskur og gólftengt klósett.
Svefnherbergi: eru tvö með parket á gólfi og fataskápum. 
Geymsla: er með góðu hilluplássi, opnanlegum glugga og flísum á gólfi.
Þvottahús: er sameignilegt með efri hæð með sérinngangi út í garð. Mjög rúmgott með skápum og flísum á gólfi. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.