Fasteignamiðlun kynnir eignina Vallarbraut 4, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-02, fastanúmer 252-8570 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Vallarbraut 4 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-8570, birt stærð 87.2 fm.
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur [email protected].Um er að ræða tveggja hæða nýbyggingar í þremur húsum nr. 2, 4 og 6 á "gamla fótboltavellinum" staðsett í miðbæ Siglufjarðar því stutt í alla þjónustu. Fimm íbúðir eru í hverju húsi með sérgeymslu ásamt vagna- og hjólageymslu.
Nánar um íbúð:
Vallarbraut 4 íbúð
0202 er skráð
87,2m2 að stærð í heild en af því er geymsla sem er
4,9m2. Ásett verð er
47.000.000 kr og
stenst skilyrði hlutdeildarlána.Íbúðin er staðsett á
2. hæð eignarinnar og samanstendur af rúmgóðu anddyri, samliggjandi stofu og eldhúsi, 2 svefnherbergjum og baðherbergi. Ljóst parket er fljótandi um íbúðina fyrir utan baðherbergi og anddyri sem eru með gráum flísum. Innréttingar eru hvítar og eru frá Birgisson Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi. Geymsla, vagna- og hjólageymsla eru í sameign á fyrstu hæð.
Anddyri: er rúmgott með hvítum skápum frá Birgisson og dökkum flísum á gólfi.
Eldhús: er opið inn í stofu með góðu gluggaplássi og útsýni. Innréttingar eru hvítar frá Birgisson og ljós borðplata. Spanhelluborð, ofn og háfur er frá Ormson.
Svefnherbergi: eru
12,2m2 og 9,5m2. stór með rúmgóðum fataskápum frá Birgisson og parket á gólfi.
Baðherbergi: er með dökkum flísum í hólf og gólf. Hvítar innréttingar eru frá Birgisson og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkar. Upphengt wc og hert sturtugler fyrir sturtu. Vifta er á baðherbergi í útvegg.
Svalir: snúa í suður og eru
6,8m2 með með timburfjölum og stál handriði.
Bílastæðin sem fylgja húsinu eru 10 talsins því gert ráð fyrir tveimur stæðum á hverja íbúð. Möguleiki verður á að setja upp rafhleðslu. Gönguleið upp á húsinu verður hellulögð með snjóbræðslu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.