Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega og vel skipulagða 3-4 herbergja íbúð á 2. hæð að Þorfinnsgötu 8, 101 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 200-8750 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin og húsið hafa fengið mikið og gott viðhald síðustu ár og er það listað hér að neðan. Húsið er teiknað af Þorleifi Eyjólfssyni arkitekt og stendur á stórri og glæsilegri hornlóð á horni Þorleifsgötu og Leifsgötu. Eignin skiptist í gang, 2 rúmgóð svefnherbergi, samliggjandi eldhús og borðstofu, stofu, baðherbergi og stúdíó með sér salerni í kjallara (merkt sem geymsla skv. teikn og HMS). Inngangur er sameiginlegur með íbúð á 3. hæð, ein íbúð á hverri hæð. Lóðin er hin glæsilegasta með upphitaðari hellulögn í kringum húsið, sameiginlegri viðarverönd íbúa, grasfleti og fallegum stórum trjám. Í kjallara er 24,9fm herbergi með salerni sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Hefur rýmið verið nýtt og leigt út sem vinnustofa listamanna í meira en ár og er vilji leigutaka að halda áfram að leigja það.
Hér má sjá video af eigninni
Frábær staðsetning á rólegum og eftirsóknarverðum stað í miðbænum með alla helstu þjónustu og verslun, skólum á öllum stigum ásamt fjölbreyttri flóru kaffi- og veitingastaða í nánasta nágrenni.
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða [email protected]Eignin Þorfinnsgata 8 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-8750, birt stærð 115.1 fm. Þar af er íbúð merkt 010201 skráð 90,2fm og stúdíó/geymsla merkt 010003 skráð 24,9fmFramkvæmdasaga: 2015: - Nýtt gler í allt húsið og gluggar gerðir upp. Allt gler endurnýjað og fúgaviðgerðir gerðar á gluggakörmum. Ný regnvatnsrenna sett upp.
2018: - Lögð ný drenlögn og skólplögn endurnýjað.
- Baðherbergi standsett og hiti lagður í gólf. Handklæðaofn settur upp og ný vönduð blöndunartæki frá Vola. Bað, vaskur og salerni keypt í Tengi. Flísar frá Agli Árnasyni.
- Allar neysluvatnslagnir endurnýjaðar fyrir 2 hæðina.
2019:- Ný hurð út í sameignina, brunahurð með góðri hljóðeinangrun. Einnig sett ný brunahurð í sameignina á fyrstu hæðinni.
- Þrýstijafnari endurnýjaður á lagnagrind.
2020: - Þakjárn endurnýjað.
- Sprungu- og múrviðgerðir gerðar á húsinu. Allir gluggar málaðir að utan.
- Í íbúðinni sjálfri voru gluggar málaðir að innan og ný stormjárn sett á alla glugga.
- Ný stétt lögð í garðinum og hann byggður upp að hluta. Nýtt gras lagt á hluta garðsins sem hafði skemmst við framkvæmdir síðustu ára.
- Öll sameignin máluð í stíl. Þvottahús málað og gólfið flotað og lakkað.
2021 - Eldhús flutt í borðstofurými og skipulagi íbúðar breytt.
- Fyllt í hurðargat, hurðarkarmar fjarlægðir og rýmið opnað.
- Ný rafmagnstafla í eldhúsi.
- Rafmagn endurnýjað
- Gólf og listar endurnýjað
2023:Ytri byrði: - Hitalagnir lagðar í stétt við hús
- Rafmagn lagt og lýsing við stétt upp að húsi
- Garður tekinn í gegn og skipulagi hans breytt og uppgert.
Kjallararými: - Vatsnlagnir teknar inn og kjarnaborað fyrir klósetti og vaski.
- Hefur rýmið verið nýtt og leigt út sem vinnustofa listamanna í meira en ár.
Nánari lýsing:Stigagangur: Sameiginlegur með 3ju hæðinni. Gengið inn í stigagang vestan megin við hús. Snyrtilegur teppalagður stigagangur.
Gangur: Tengir saman öll rými íbúðar.
Svefnherbergi I: Rúmgott barnaherbergi
Svefnherbergi II: Mjög rúmgott með upprunalegum innbyggðum skápum. Gott skápapláss.
Baðherbergi: Baðherbergi standsett. Hiti lagður í gólfið, handklæðaofn settur upp og ný vönduð blöndunartæki frá Vola. Flísar frá Agli Árnasyni á gólfi og veggjum. Bað, vaskur og salerni keypt í Tengi.
Stofa: Rúmgóð og björt með fallegum hornglugga. Opið og í góðri tengingu við borðstofu og eldhús. Hægt að loka á milli með innbyggðum rennuhurðum sem liggja á milli veggja.
Eldhús/Borðstofa: Eldhús er sérhannað og fært inn í borðstofu. Ný eldhúsinnrétting uppsett árið 2021 með sérpanntaðari gegnheillri eikarborðplötu á eldhúsbekk. Eldhústæki eru innbyggð og eru af gerðinni Whirlpool/Electrolux, ísskápur, spanhelluborð ásamt bakara- og örbylgjuofni í vinnuhæð. Opnar upphengdar hillur á vegg. Fallegt og vel hannað eldhús með góðu skápa- og vinnuplássi. Samliggjandi borðstofu og hálf opið við stofu.
Stúdíó/Geymsla: 24,9fm rými í kjallara með sér salerni. Hefur fjölbreytta nýtingarmöguleika. Kjarnaborað var fyrir salerni og sturtu í rýminu árið 2023. Búið er að útbúa salernisaðstöðu í rýminu. Hefur rýmið verið nýtt og leigt út sem vinnustofa listamanna í meira en ár.
Gólfefni: Parket á gólfi í öllum rýmum íbúðar að undanskyldu baðherbergi sem er flísalagt. Málað gólf í stúdíó herbergi í kjallara.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús í kjallara. Hver með sýna vél og rafmagnstengil. Þvottahús málað og gólfið flotað og lakkað 2020.
Lóð: Afar falleg og snyrtileg hornlóð. Garðurinn hefur verið tekinn í gegn á undanförnum árum þar sem upphitaður og upplýstur göngustígur í kringum hús hefur verið lagður og nýjar grastorfur að hluta. Sameiginleg viðarverönd. Falleg gróin tré.
Afar falleg eign á eftirsóttum og rólegum stað í miðbæ Reykjavíkur. Nálægðin við iðandi mannlíf miðborgarinnar setur hverfið í flokk eftirsóttustu hverfa borgarinnar. Menningin blómstrar í miðborginni og það að búa í göngufæri við fjölbreytt úrval kaffi- og veitingastaða, leikhús, listasöfn og tónleikastaði býður upp á einstaka möguleika og mikil lífsgæði.Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur [email protected].Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.