Laugarvegur 14, 580 Siglufjörður
37.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Þríbýli
3 herb.
101 m2
37.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1951
Brunabótamat
42.150.000
Fasteignamat
22.550.000

Fasteignamiðlun kynnir eignina Laugarvegur 14, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0649 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Laugarvegur 14 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0649, birt stærð 101.6 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur [email protected].


Um er að ræða miðhæð í þríbýli með sérinngang og bílastæði. Fallegt útsýni er úr bogadregnum stofuglugga yfir fjörðinn. Eignin samanstendur af rúmgóðu anddyri, eldhúsi, búri, stofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu. Stofan er tvöföld og möguleiki á að útbúa auka svefnherbergi þar án þess að rýra stofupláss. Búið að er endurnýja glugga, vatnslagnir, eldhús, baðherbergi og gólfefni að hluta. Einnig hafa útitröppur verið lagaðar og til stendur að laga svalir í sumar. 

Forstofa: er parketlögð með góðu fatahengi og geymsluplássi undir stiga á efri hæð. 
Eldhús: er með dökkri viðarinnréttingu, svartri borðplötu og flísum á milli skápa. Nýleg tæki eru í eldhúsi. Parket er á gólfi. 
Búr: er mjög rúmgott inn af eldhúsi með góðu hillu- og borðplássi. Flísar eru á gólfi. 
Stofa: er með góðu gluggaplássi og parket á gólfi. Möguleiki er á að útbúa herbergi inn af stofu. Útgangur er á suður svalir úr stofu. 
Svefnherbergi: eru tvö mjög rúmgóð með fataskápum og parket á gólfi. 
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf með frístandandi sturtuklefa, hvítri innréttingu, vask, gólftengdu klósetti og handklæðaofn. 
Þvottahús: er með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, góðu hillu- og skápaplássi og útganga út á pall með skjólvegg. 
Geymsla: er með sérinngangi á norðurhlið eignarinnar. Geymslan er í sameign með efri hæð hússins.  
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.