Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali kynna góða og vel hannaða 100,9fm, 3ja herbergja endaíbúð á jarðhæð með sér bílastæði fyrir framan sérinngang íbúðar ásamt stórum sérafnotareit í garði að Löngumýri 22, 210 Garðabær. Sér bílastæði eignar er á bílaplani fyrir framan sérinngang íbúðar. Fyrir aftan hús í garði er stór sérafnotareitur eignar. Húsið er steinsteypt og stendur af 4 sambyggðum raðhúsum á 2 hæðum með 8 íbúðum alls. Hvert hús er með 2 íbúðum, efri og neðri hæð. Húsið er steinsteypt og er teiknað af Kjartani Sveinssyni húsasmíðameistara. Húsið er byggt árið 1987 og stendur á 1694fm lóð. Vel skipulögð íbúð í vinsælu hverfi miðsvæðis í Garðabæ.
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða [email protected]
!!! Hér má sjá video af eigninni !!!Eignin Langamýri 22 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 207-1200, birt stærð 100.9 fm.
Nánari lýsing:
Íbúðin er á jarðhæð í tveggja hæða fjölbýli með samtals 8 íbúðum sem allar eru sjálfstæðar einingar. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, eldhús, borðstofu og stofu með útgengi á stóran sérafnotareit til vesturs.
Forstofa: Komið inn í forstofu um sérinngang. Flísalögð og með þreföldum fataskáp.
Hol: Rúmgott og tengir saman flestar vistarverur. Teiknað sem sjónvarpshol skv. upphaflegum teikningum.
Eldhús: Ljós innréttingu með efri og neðri skápum. Flísar á vegg milli efrir og neðri innréttingar.
Borðstofa: Opin við eldhús og stofu.
Stofa: Rúmgóð og björt. Gengið niður eina tröppu og komið í stofuna. Þaðan er gengi' út á hellulagðan verönd til vesturs.
Herbergi I: Rúmgott með þreföldum fataskáp.
Herbergi II: Rúmgott með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Innrétting með skápum, vaski, spegli fyrir ofan vask ásamt innbyggðri lýsingu. Baðkar með upphengdri sturtu og klósett. Þrefaldur gluggi með opnanlegu fagi.
Þvottaherbergi/geymsla: Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Upphengdar hillur. Gluggi með opnanlegu fagi í þvottahúsi/geymslu.
Gólfefni: Parket í eldhúsi, holi, borðstofu og herbergjum. Flísar á gólfi í forstofu, baðherbergi og stofu.
Bílastæði: Sér bílastæði fyrir framan inngang. Bílastæði er hellulagt.
Sérafnotareitur: Stór sérafnotareitur til vesturs. Hellulagður að hluta og tyrfður að hluta. Möguleiki á að loka af sérafnotareit.
Hér er um að ræða afar skemmtilega, vel skipulagða og íbúð á jarðhæð með sérinngangi, sér bílastæði og stórum sérafnotareit í rólegu hverfi miðsvæðis í Garðabæ. Íbúðin er vel staðsett og stutt er í alla helstu þjónustu svo sem skóla, frístundaiðkun, sundlaug, heilsugæslu, verslanir ofl. Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur [email protected].Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.