Malarhöfði 8, 110 Reykjavík (Árbær)
Tilboð
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
8 herb.
1962 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1992
Brunabótamat
730.450.000
Fasteignamat
510.750.000

Fasteignamiðlun kynnir vel staðsett 1962,1 fm. iðnaðarhúsnæði við Malarhöfða 8 í Reykjavík. Lóðin er skráð sem iðnaðar og athafnalóð og er stærð hennar 3174 fm.

Eignin er staðsett innan Ártúnshöfða-Elliðaárvogs, sem er stærsta þróunarsvæði Reykjavíkur fyrir blandaða byggð íbúða og þjónustu. Rammaskipulag fyrir svæðið var staðfest árið 2017 og í framhaldi verið unnið að deiliskipulagi fyrir minni áfanga á svæðinu. Deiliskipulagssvæðið er austan við ósa Elliðaáa. Malarhöfðinn, sem er hluti af Ártúnshöfða, er eins konar háslétta og einkennist af miklum landhalla frá Bíldshöfða niður til norðurs í átt að framtíðarlegu Borgarlínu. Frekari upplýsingar um stöðu skipulagsvinnunnar á svæðinu má nálgast hér https://skipulagsgatt.is/issues/2024/486.
 
Nánari lýsing:
Heildarstærð eignarinnar er 1962,1 fm. en tvær fasteignir standa á lóðinni, annars vegar í 1662,2 fm. iðnaðar- og verslunarhúsnæði, og hins vegar í 300 fm. vörugeymslu. Heildareignin er í dag nýtt undir rekstur Blikksmiðsins hf., en hún verður laus til afhendingar síðar á þessu ári.
 
Eignin stendur á góðum stað, með góðri aðkomu og getur hentað undir ýmiskonar starfsemi í dag

Óskað er eftir tilboðum í eignina.

Frekari upplýsingar veitir Sverrir Pálmason, lögmaður og lgf., í síma 867-1001 ([email protected]).
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.