Auðbrekka 16, 200 Kópavogur
89.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
123 m2
89.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1967
Brunabótamat
65.400.000
Fasteignamat
76.800.000

Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali kynna fallega, bjarta og mikið uppgerða 123,4fm útsýnisíbúð á 3. hæð að Auðbrekka 16, 200 Kópavogur. Íbúðin er í New York style með stóru, björtu og opnu alrými með samliggjandi stofu, borðstofu og eldhúsi. 3 metra lofthæð er í íbúðinni með stórum gluggum í 3 áttir. Útsýni úr stofu er til norðurs með stórbrotnu útsýni yfir Reykjavík, yfir Fossvofinn og út til Esjunnar. 2 rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með góðum fataskápum. Baðherbergi og þvottahús er í sameiginlegu rými, endurnýjað á vandaðan hátt árið 2023. Eldhús er opið við stofu með fallegri innréttingu og afar góðu skápa og vinnuplássi. Eldhús var endurnýjað árið 2017. Geymsla / búr er innan íbúðar. Sameiginlegur inngangur er með fyrstu og annarri hæð en gengið er upp steyptar tröppur á þriðju hæð, fataskápur og fatahengi er á rúmgóðum stigapalli. Í dag eru það einungis eigendur hæðarinnar sem nýta innganginn. Afar falleg, opin og björt útsýnisíbúð í vinsælu hverfi í Kópavoginum.

Fasteignamat eignar fyrir árið 2026 er skv. HMS 84.900.000kr

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða [email protected]

Eignin er staðsett í blandaðri byggð með íbúðarhúsum asamt atvinnu- og þjónustuhúsnæðum í bland. Mjög góð staðsetning í Kópavoginum með leik-, grunn- & framhaldsskóla í nágrenninu og þá er ekki mjög langt í háskólanna. Þá er ekki langt í rómað og fjölbreytt íþrótta- og tómstundarstarf Breiðabliks og HK. Góð tenging við stofnbraut. Öll helsta verslun og þjónusta allt í kring. Þá eru útivistarperlurnar í Fossvoginum og í Kópavogsdalnum í nágrenninu með fallegum hjóla- og gönguleiðum.,


Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: Birt stærð 123.4 fm. Allri fermetrar eignar eru innan íbúðar.

Nánari lýsing:
Stigagangur: Gengið inn á vesturhlið hússins. Sameiginlegur með 1. og 2. hæð. Aðeins nýtt af íbúðinni sem stendur. Fataskápur og fatahengi er á rúmgóðum stigapalli fyrir framan inngangshurð.
Alrými: Komið inn í afar rúmgott, opið og bjart alrými með samliggjandi stofu, borðstofu og eldhúsi.
Eldhús: Opið og samliggjandi stofu. Eldhús endurnýjað árið 2017. Innrétting U laga með góðu skápa og vinnuplássi. Ofn í vinnuhæð og spanhelluborð, aðstaða fyrir uppþvottavél og tvöfalldan ísskáp (ísskápur getur fylgt með). Aðstaða fyrir 4-5 barstóla við eldhús. Fallegt, vel hannað og praktískt hannað eldhús.
Búr: Við hlið eldhúss, innaf borðstofu með rennihurð. Gott geymslupláss með upphengdum hillum.
Stofa: Afar rúmgóð, opin og björt samliggjandi stofa og borðstofa, opin við eldhús. 3M lofthæð (í allri eigninni) og falleg gluggasetning með stórum gluggum. Stórbrotið úrsýni yfir Reykjavík, út á Fossvoginn og út á Esjuna.
Baðherbergi: Endurnýjað árið 2023 á vandaðan og fallegan máta. Innbyggður sturtuklefi með glerhurð, baðkar, upphengt klósett ásamt baðinnréttingu með skúffum, vask og speglaskáp fyrir ofan vask. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ofan á skúffueiningu. Flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum með terrazzo munstri að undanskyldum einum vegg sem er með sægrænum subway flísum á vegg. Afskaplega rúmgott, vel hannað og fallegt baðherbergi.
Svefnherbergi I: Innaf stofu. Rúmgott með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi II: Í suðurenda í búðar. Rúmgott með góðu skápaplássi. Útgengt út á suðursvalir.

Hita og rafmagnskostnaður: Inntök hita er staðsett í rými 0102 og einnig hitamælar. Sér hitamælar fyrir hverja eign. Rafmagn fyrir allar eignir eru á sér mælum og eru rafmagnsmælar staðsettir í viðkomandi eignum.

Við Auðbrekkuna er öll helsta verslun og þjónusta í nánasta nágrenni. Nýbýlavegurinn hefur blómstrað síðustu ár, fjölmargar verslanir, kaffihús og veitingarstaðir er þar að finna og fjölbreytninni hefur aldrei verið meiri. Hamraborgin í nokkra mínútna göngufjarlægð með þjónustu- og verslunarkjarna. Þá er ekki langt í Smáralindina og í Kringlunna með allt sem þær verslunarmiðstöðvar hafa upp á að bjóða. Lágvöru matvörurverslanir í nágrenninu. Afar miðsvæðis með góðar tengingar við stofnbrautir.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur [email protected].

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.