Fasteignamiðlun kynnir eignina Hvanneyrarbraut 36, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 213-0512 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hvanneyrarbraut 36 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0512, birt stærð 102.7 fm.
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur [email protected].Um er að ræða efri hæð í tvíbýli með stórum timbursvölum og frábæru útsýni. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, borðstofu, stofa, 2 svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu. Búið er að klæða eignina með bárujárni að utan, skipta um vatnslagnir, endurnýja glugga og þak var yfirfarið fyrir einhverjum árum. Garður er sameiginlegur með neðri hæð en stór timburpallur með útgengi úr stofu snýr í suður og austur. Háaloft er yfir eigninni með aðgang frá gangi. Tröppur eru nýyfirfarnar og steyptar.
Forstofa: er með dúk á gólfi og góðu fatahengi.
Eldhús: er með góðu skápaplássi, borðkrók og kork á gólfi.
Borðstofa: er með miklu gluggaplássi og opin inn í stofu. Parket er á gólfi.
Stofa: er rúmgóð með frábæru útsýni, útgang út á svalir og parket á gólfi.
Svefnherbergi: eru tvö með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Baðherbergi: er með dúk á gólfi, frístandandi sturtuklefa, vask, salerni og skápum. Þvottarými er inn af baðherbergi.
Þvottahús: er inn af baðherbergi með dúk á gólfi.
Geymsla: er inn af forstofu með góðu hilluplássi og opnanlegum glugga. Einnig er sérgeymsla á neðri hæð með sérinngangi.
Sameign: er á neðri hæð með sérinngangi. Inntak vatns og vatnslagnir eru staðsettar þar. Gólf er steypt og málað.
Garður: er sameiginlegur og grasi þaktur.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.