Fasteignamiðlun kynnir eignina Hafnartún 16, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0310 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hafnartún 16 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0310, birt stærð 226.9 fm.
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur [email protected].Um er að ræða
5 svefnherbergja enda raðhús með garði, palli, bílskúr og auka bílastæði. Eignin er á tveimur hæðum og samanstendur af eldhúsi, stofu, borðstofu, 5 svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvotthúsi, geymslu og bílskúr.
Efri hæð eignarinnar samanstendur af sér anddyri, eldhúsi, stofu, baðherbergi, þremur svefnherbergjum og útgang út á suðursvalir. Fljótandi parket er á efri hæð utan baðherbergis og anddyris.
Neðri hæð eignarinnar samanstendur sér anddyri, þvottahúsi, baðherbergi, tveimur svefnherbergjum, geymslu og útgangi út á pallinn. Eldhús var endurnýjað árið 2019 ásamt því að hiti var settur í gólf á alrými og baðherbergi efri hæðar. Einnig er búið er að skipta um gler í glugga í eldhúsi og stofu og skipt var alfarið um glugga í þvottahúsi. Skipt hefur verið um þak, bílskúrshurð og anddyris hurð á neðri hæð. Vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar ásamt innihurðum. Bílskúr er skráður
33m2 og hiti er í plani fyrir utan. Auka stæði malbikað er við enda eignarinnar.
Anddyri efri hæðar: er rúmgott með flísum á gólfi og gólfhita.
Eldhús: er með hvítri innréttingu og eikar borðplötu. Parket er á gólfi með gólfhita.
Stofa: liggur saman með eldhúsi, borðstofu og er með parket á gólfi. Útgangur er úr stofu út á steyptar suður svalir.
Svefnherbergi: eru fimm misstór, þrjú á efri hæð og tvö á neðri. Aðgangur er upp á geymslu loft úr einu herbergjanna.
Baðherbergi efri hæðar: er með flísum á gólfi og gólfhita, hvítri innréttingu, salerni og baðkari. Gluggi er með opnanlegu fagi.
Baðherbergi neðri hæðar: er með flísum í hólf og gólf einnig í sturtuklefa, vaskur og salerni. Vifta er í útvegg.
Þvottahús: er með ljósum flísum á gólfi og opnanlegum glugga. Þvottahús liggur út frá anddyri neðri hæðar.
Geymsla: er innaf þvottahúsi með flotuðu lökkuðu gólfi og góðu hilluplássi.
Bílskúr: er með flotuðu lökkuðu gólfi og bílskúrshurð með ráphurð.
Garður: er með timburpalli að hluta og grasbala. Meðfram eigninni er einnig graslagður stígur og fánastöng.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Fasteignamiðlun ehf - Grandagarði 5 - 101 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali í Fjallabyggð
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.