Hlíðarvegur 6, 580 Siglufjörður
22.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Tvíbýli
4 herb.
91 m2
22.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1934
Brunabótamat
42.350.000
Fasteignamat
23.050.000

Fasteignamiðlun kynnir eignina Hlíðarvegur 6, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 213-0378 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hlíðarvegur 6 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0378, birt stærð 91.1 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur [email protected].


Um er að ræða hæð með risi og frábæru útsýni. Staðsett í miðbæ Siglufjarðar stutt frá allri þjónustu og leikskóla/skóla. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi og risi. Risið er undir súð með gluggum sitthvoru megin. Mikið pláss og möguleikar eru í risi. Búið er að endurnýja glugga eignarinnar og svalir eru sunnan við eign með frábæru útsýni. 

Forstofa: er á miðhæð eignarinnar með sérinngangi og flísum á gólfi. Teppalagður stigi er upp í íbúð.
Eldhús: er með hvítum innréttingum og eikar borðplötu. Frábært útsýni er út fjörðinn úr eldhúsi. 
Stofa/borðstofa: liggja saman í einu rými með útgang út á suður svalir. Útsýni er yfir miðbæ Siglufjarðar.
Svefnherbergi: eru tvö bæði með parket á gólfi. 
Baðherbergi: er með dúk á gólfi og flísalögðum veggjum, frístandandi sturtuklefa, innréttingu, vask og salerni. Þvottaaðstaða er inn á baðherbergi. 
Ris: er yfir allri eigninni með gluggum sitthvoru megin. Risið er undir súð með timbur fjölum á gólfi.  
Geymsla: er inn af anddyri sem áður var stigagangur á neðri hæðina. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignamiðlun ehf - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali í Fjallabyggð

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.